Skilmálar

Vinsamlegast lesið skilmálana vandlega, þeir innihalda mikilvægar upplýsingar.

Hægt er að hafa samband á netfangið: melba@melba.is


1. Almenn ákvæði 

Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu www.melba.is.
Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Melba annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir við nýskráningu á vefsíðu melba teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu. „Kaupandi“ er einstaklingur, sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi verður að vera a.m.k. 16 ára. „Kaupandi“ getur líka verið lögaðili, en lög um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga við fyrirtæki og stofnanir. Þessi lög gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir. Melba selur vörur eða þjónustu til kaupanda á vefsvæði sínu. Melba býður kaupanda að fá vöruna senda heim til sín, sjá afhendingarleiðir í kafla 6.

2. Upplýsingar og verð 

Verð á vefsvæði Melba og í útsendum póstum eru með virðisaukaskatti og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Melba áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. Melba mun upplýsa kaupanda um allt slíkt eins fljótt og kostur er, og hugsanlega koma með tillögu að annarri vöru sem kaupanda gefst kostur á að samþykkja eða hafna. Seljandi áskilur sér rétt til að breyta verði á vöru án fyrirvara en verð eru almennt breytileg vegna samkeppni og verðbreytinga birgja. 

3. Persónuupplýsingar 

Farið er með allar persónuupplýsingar sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslur. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

4. Aðgangur 
Kaupandi hefur leyfi til að nota Melba og þá þjónustu sem þar er boðið upp á í samræmi við skilmála þessa og þær aðgangstakmarkanir sem Melba setur. Stranglega er bannað að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu inn á melba.is.

Melba áskilur sér rétt til að vinna náið með lögreglu við úrlausn slíkra mála, þ.m.t. að veita henni þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru. Verði kaupandi uppvís að sviksamlegu athæfi við kaup á melba.is verður það tilkynnt til lögreglu. Melba áskilur sér rétt til að takmarka eða loka fyrir aðgang að melba.is ef grunur leikur á að kaupandi hafi orðið uppvís að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu.


5. Pöntun og greiðsla

Þegar kaupandi hefur staðfest pöntun á vefsvæði Melba telst hún bindandi milli aðila. Kaupandi fær pöntunarstaðfestingu senda á netfang sem gefið var upp við pöntun. Kaupanda er bent á að kynna sér vel staðfestingu á pöntun þegar hún berst. Hægt er að greiða með greiðslukorti, upphæðin er skuldfærð við afgreiðslu pöntunarinnar af lager.

6. Afhending 
Í kaupferlinu velur kaupandi sér sendingarleið en sendingar eru afgreiddar allt frá 1-7 dögum eftir að greiðsla hefur borist. Melba sendir allar vörur sínar í vönduðum umbúðum til að tryggja að þær skili sér heilar til viðskiptavina. 

Flutningsaðilar Melba er Dropp ehf. og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp ehf. um afhendingu vörunnar. 

Verð fyrir sendingu með Dropp: 

-Á höfuðborgarsvæðinu kr. 790 með vsk

-Á aðra staði kr. 990 með vsk

-Sé valin heimsending er kostnaður kr. 1.350 á höfuðborgarsvæðinu og kr. 1.450 á suðvesturhorninu.

Sjá nánar hér: https://www.dropp.is/verdskra

7. Yfirverð á vöru 

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu og reikning. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar sem fylgja með vörunni. Ef kaupandi telur að varan sé ekki í samræmi við vörulýsingu eða þörf er á ítarlegri leiðbeiningum með vörunni, skal senda tilkynningu þess efnis með tölvupósti á melba@melba.is

Melba verslun áskilur sér rétt að sannreyna staðhæfingu innan 14 daga. 

 8. Gallar 
Sé um gallaða vöru að ræða skal hafa samband við fyrsta tækifæri svo hægt sé að skipta henni út eða gefa út kreditreikning/endurgreiðslu sé ekki hægt að skipta vörunni út. Samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 á kaupandi rétt á því að fá gallaða vöru bætta ef tilkynning berst okkur innan tveggja mánaða frá því að kaupandi varð var við galla.

9. Samningur 

Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála vefverslunarinnar melba.is. Hver kaup eru bindandi fyrir kaupanda samkvæmt skilmálum og skilyrðum vefverslunarinnar.

10. Greiðsla 

Í vefverslun Melba eru verð tilgreind í íslenskum krónum og innihalda 24% virðisaukaskatt. Sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram. 

Kaupanda er boðið upp á að greiða öllum helstu greiðslukortum þar sem greiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt Teya Iceland hf.

11. Skilaréttur 

Kaupandi sem verslar á melba.is hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að varan hafi ekkert verið notuð, henni sé skilað í fullkomnu lagi í söluhæfum og upprunalegum umbúðum. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Skilafrestur byrjar að líða frá því að vara er afhent.

Reikningskvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með vöruskilum. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Það er okkur mikilvægt að viðskiptavinir séu ánægðir því hvetjum við viðskiptavini að senda á netfangið melba@melba.is telji þeir að kaupin séu ekki fullnægjandi.

Að öðru leyti vísum við til laga nr. 48/2003 um neytendakaup.

12. Eignarréttur 

Seldar vörur eru eign Melba þar til kaupverð er greitt að fullu. Öll afritun myndefnis af melba.is og öðrum miðlum er óheimil. 

13. Annað

Melba verslun áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði kaupanda tilkynnt um það. Útsending nýrra skilmála til kaupanda og/eða birting á vefsíðu melba.is telst nægileg tilkynning. Litið er svo á að kaupandi hafi samþykkt breytinguna ef hann kaupir vöru eða þjónustu eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út. 

14. Ágreiningur 

Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjaness skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.

15. Gildistími 

Skilmálar þessir gilda frá 1. júlí 2024.

Melba ehf.
Melavegur 20, 260 Reykjanesbær, Ísland.
Kt. 680624-1190
VSK nr. 153667
melba@melba.is