Páskaskraut

GUÐIR & GYÐJUR

Grísk goðafræði var trú Forn-Grikkja. Hún byggist á útskýringum á náttúrufyrirbærum sem enginn hafði svör við, sköpun heims og manna, og af hverju lífið er eins og það er. Hver og einn guð eð gyðja hefur sín einkennistákn.

LEIRVERK

Forngrísk list er þekkt fyrir flókin smáatriði, gæði og fullkomnun í list sinni.

Stytturnar hjá melba eru handgerðar og handmálaðar af grískri fjölskyldu á Krít.

AFRÓDÍTA | Ἀφροδίτη

Afródíta, Ἀφροδίτη á forngrísku, var gyðja ástar og fegurðar. Einnig var hún gyðja alls þess góða og illa í hafinu. Fólk, guðir og listamenn sem braust fram þegar að hún brosti eða hló.

APPOLLON | Ἀπόλλων

Apollon, Ἀπόλλων á forngrísku, var guð spásagna og
sannleikans, tónlistar og kveðskapar, ljóss og lækninga, tærleika, íþrótta,
fegurðar og vitneskju og guð bogafiminnar. Apollon var álitinn geta bæði
læknað, verndað heilsu og sent sjúkdóma og plágur.

Caption

ARTEMIS | Ἄρτεμις

Artemis, Ἄρτεμις á forngrísku, var gyðja veiða, náttúru og frjósemi. Einnig
var hún verndari barna og kvenna við barnsburð og einnig viltra dýra. Hún
verndaði ungar stúlkar allt frá fæðingu þar til þær giftu sig.

NIKÉ (THE WINGED VICTORY) OF SAMOTHRACE

Niké var gyðja sigursins, bæði í stríði og íþróttum. Niké er eitt virtasta listaverk hellenískrar gríslkar listar. Hún var fundin á eyjunni Samothrace árið 1863, en á hana vantaði fæturna, handleggina og höfuðið sem gefur styttunni táknræna mynd.